- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ósáttir Íslendingar töpuðu á heimavelli

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla og þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Fredericia Håndboldklub. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Lærisveinar Guðmundar Þórðar Guðmundssonar í Fredericia Håndboldklub töpuðu á heimavelli fyrir meisturum síðasta árs, GOG, á heimavelli í dag með sex marka mun, 34:28, í fimmtu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Fredericia Håndboldklub var sjö mörkum undir í hálfleik, 20:13. 


Einar Þorsteinn  Ólafsson skoraði ekki mark en var í tvígang vísað af leikvelli. Guðmundur Þórður fékk einnig tveggja mínútna ofanígjöf frá dómurunum þegar innan við þrjár mínútur voru til leiksloka. Hann hafði verið aðvaraður fyrr í leiknum. 



Fredericia Håndboldklub er í áttunda sæti deildarinnar með fimm stig eftir fimm leiki. GOG er með fullt hús stiga í efsta sæti.

Staðan:

Standings provided by SofaScore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -