Örvhenti hornamaðurinn Ott Varik hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Varik gekk í raðir KA síðasta sumar skoraði 115 mörk í 27 leikjum og var meðal markahæstu manna Olísdeildarinnar.
Varik sem er 33 ára gamall er...
Leikmenn ÍBV spyrntu sér frá veggnum sem þeir voru komnir upp að í undanúrslitaeinvíginu við FH og unnu með eins marks mun, 29:28, þriðju viðureign liðanna í troðfullum Kaplakrika í kvöld. Fjórða viðureign liðanna verður í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 1....
Úrslitakeppni Olísdeildar karla í handkattleik heldur áfram í kvöld þegar FH og ÍBV mætast í þriðja sinn í undanúrslitum. Að þessu sinni verður leikið í Kaplakrika í Hafnarfirði. Upphafsmerki verður gefið klukkan 18.30. FH-ingar hafa unnið tvo sannfærandi sigra...
Jens Bragi Bergþórsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2025-2026. Jens Bragi verður 18 ára í sumar. Hann hefur verið í vaxandi hlutverki í meistaraflokksliði KA.
Jens Bragi hefur vakið...
Ekki tókst leikmönnum ÍBV að standast deildarmeisturum Vals snúning á heimavelli í kvöld þegar liði mættust öðru sinni í undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handknattleik. Valsmenn höfðu yfirburði eins og í fyrstu viðureigninni á heimavelli á þriðjudaginn. Lokatölur í Eyjum...
Annan leikinn í röð unnu Haukar leikmenn Fram eftir framlengingu í undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handknattleik í kvöld., 28:25, en leikið var á Ásvöllum. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma, 24:24, og eins og í Lambhagahöllinni á þriðjudagskvöldið jafnaði Elín...
Lokahóf handknattleiksdeildar ÍR fór fram að kvöldi síðasta vetrardags. Þar komu saman leikmenn, sjálfboðaliðar og aðrir velunnarar deildarinnar og gerðu upp veturinn. Sjálfboðaliðar deildarinnar fengu þakklætisvott frá félaginu og leikmenn voru verðlaunaðir fyrir framgöngu sína í vetur.
Kvennalið ÍR lék...
Anna Karen Hansdóttir hefur skrifað undur nýjan samning við handknattleiksdeild Stjörnunnar. Anna Karen er 22 ára vinstri hornamaður. Hún kom til Stjörnunnar fyrir fjórum árum frá Danmörku þar sem hún er fædd og uppalin. Í Danmörku lék Anna Karen...
Önnur umferð undanúrslita Olísdeildar kvenna fer fram í kvöld. Leikið verður á Ásvöllum og í Vestmannaeyjum. Auk þess halda Fjölnir og Þór áfram kapphlaupinu um sæti í Olísdeild karla á næsta keppnistímabili í Fjölnishöllinni. Hvort lið hefur einn vinning.
Haukar...
FH-ingar unnu ÍBV, 36:28, í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í Vestmannaeyjum í gær. FH hefur þar með tvo vinninga en Eyjamenn engan. Deildarmeisturum FH vantar einn vinning til viðbótar til þess að tryggja sér...
Valur hefur samið við færeysku vinstri skyttuna Bjarna í Selvindi. Hann kemur til Hlíðarendaliðsins frá norska úrvalsdeildarliðinu Kristiansand í Noregi eftir þetta tímabil. Samningur Bjarna við Val er til tveggja ára.
Bjarni er 21 árs, mjög efnilegur og átti sæti...
FH-ingar hreinlega kjöldrógu leikmenn ÍBV í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í Vestmannaeyjum í dag. Deildarmeistararnir unnu með átta marka mun, 36:28, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik. FH hefur þar með...
Handknattleiksfólk tekur glaðbeitt á móti sumrinu víða um land í dag. M.a verður framhaldið úrslitakeppni Olísdeildar karla og umspilskeppni Olísdeildar kvenna.Í Vestmannaeyjum mætast ÍBV og FH í íþróttamiðstöðinni í Vestmanaeyjum klukkan 17. Um er að ræða aðra viðureign liðanna...
Handknattleiksmarkvöðurinn Arnór Freyr Stefánsson hefur ákveðið að taka fram keppnisskóna á nýjan leik og ganga til liðs við uppeldisfélag sitt, ÍR. Arnór Freyr lék síðast með Stjörnunni leiktíðina 2022/2023 en dró saman seglin fyrir ári og varð markvarðaþjálfari Stjörnunnar...
https://www.youtube.com/watch?v=bypkCIEYWzE
„Þetta var bara geggjað, allt fyrir áhorfendur, sveiflur og síðan alvöru spenna í lokin. Ég held að áhorfendur hafi fengið allt fyrir peninginn,“ sagði Birgir Steinn Jónsson leikmaður Aftureldingar glaður í bragði í samtali við handbolta.is eftir sigur Aftureldingar...