Grétar Ari Guðjónsson varði átta skot, þar af tvö vítaköst, þegar lið hans Sélestat vann Massy, 31:26, í næst efstu deild franska handknattleiksins í gærkvöld. Grétar Ari lék aðeins hluta leiksins því hann var með hlutfallsmarkvörslu upp á 42%. Sélestat ...
Tryggvi Þórisson skoraði tvö mörk fyrir deildarmeistara IK Sävehof þegar liðið vann HF Karlskrona í síðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöld í hörkuleik sem fram fór í Karlskrona, 32:31. Sävehof vann deildina með talsverðum yfirburðum, fékk sjö stigum fleiri...
Berta Rut Harðardóttir og samherjar hennar í Kristianstad HK tryggðu sér fimmta sæti í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld þegar síðasta umferðin fór fram. Kristianstad HK vann Skara HF, 29:25, í Skara. Berta skoraði tvö mörk og átti tvær stoðsendingar.
Aldís...
Bjarki Finnbogason og félagar hans í Anderstorps komu sér upp úr fallsæti í Allsvenskan, næst efstu deild sænska handknattleiksins í lokaumferðinnni í gærkvöld þeir unnu Redbergslid, 24:22, á heimavelli. Þess í stað féll Redbergslid úr deildinni ásamt Lindesberg. Anderstorps...
Þýska landsliðskonan Alina Grijseels hefur samið við rúmenska meistaraliðið CSM Búkarest. Grijseels flytur til Búkarest í sumar þegar eins árs dvöl hennar hjá Metz verður lokið.
Franska landsliðskonan Laura Flippes yfirgefur CSM Búkarest í sumar og flytur til Metz í...
Viktor Gísli Hallgrímsson er ennþá fjarverandi vegna meiðsla og var þar af leiðandi ekki með Nantes í gær þegar liðið vann Toulouse, 40:30, á heimavelli í 21. umferð frönsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Nantes er í öðru...
Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting Lissabon undirstrikuðu yfirburði sína í portúgölsku 1. deildinni í gær þegar þeir unnu meistara síðasta árs, Porto, 35:32, á heimavelli. Sporting er deildarmeistari með fullu húsi stiga. Liðið vann allar 22 viðureignir...
Teitur Örn Einarsson er ennþá frá keppni vegna tognunar í nára og lék þar af leiðandi ekki með Flensburg í dag þegar liðið vann THW Kiel í grannaslag þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í dag, 33:26. Meiðslin urðu til...
Elvar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk og átti tvær stoðsendingar þegar MT Melsungen lagði Lemgo, 26:25, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Arnar Freyr Arnarsson lék einnig með Melsungen eins og vant er. Hann skoraði...
Dagur Gautason skoraði eitt mark þegar lið hans ØIF Arendal vann Sandnes, 35:28, í 23. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Leikurinn fór fram í Vår Energi Arena Sandneshallen. ØIF Arendal var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15:13....