Aðgöngumiðar á upphafsleik Evrópumóts karla í handknattleik í 10. janúar á næsta ári rjúka út eins og heitar lummur. Þegar hafa 40 þúsund miðar verið seldir af þeim 50 þúsundum sem verða til sölu. Leikurinn fer fram á Merkur Spiel-Arena, knattspyrnuvellinum í Düsseldorf.
Handknattleikssamband Evrópu greindi frá þessum tíðindum í dag. Eina sem ljóst er að þýska landsliðið, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, mun taka þátt í leiknum. Þegar búið verður að draga í riðla mótsins í sumar liggur fyrir hvaða landslið mætir Þýskalandi í þessum sögulega leik þar sem aðsóknarmet verður að öllum líkindum slegið.
Afar góður árangur þýska landsliðsins, 5. sæti, sem fór fram úr vonum, hefur aukið ennþá á áhugann fyrir leiknum.
What a rush for #ehfeuro2024 tickets 🎟 40k already sold for the opening day in Dusseldorf. But there’s so much more. 🤩
— EHF EURO (@EHFEURO) February 3, 2023
📲 Check out all venues at https://t.co/LxSDiAe0O2 and see the best teams play next January 📆👀 pic.twitter.com/p9bQvAdiAy