- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Einn sá traustasti heldur áfram næstu tvö ár

Haddur J. Stefánsson, formaður handknattleiksdeildar KA og Patrekur Stefánsson handsala samninginn. Mynd/KA
- Auglýsing -

Einn traustasti leikmaður handknattleiksliðs KA, Patrekur Stefánsson, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið út tímabilið 2024-2025.


Patrekur sem er 27 ára gamall leikstjórnandi er uppalinn hjá KA og hefur leikið 92 leiki fyrir félagið í deild, bikar og í Evrópukeppni en auk þess lék hann 30 leiki með sameiginlegu liði Akureyrar Handboltafélags á árunum 2013-2017. Patti lék 20 leiki á síðustu leiktíð og gerði í þeim 36 mörk.

„Eins og áður segir eru það afar jákvæðar fregnir að Patti hafi skrifað undir nýjan samning við félagið en auk þess að taka vel á því innan vallar er hann duglegur að taka þátt í starfinu í kringum liðið. KA liðið teflir fram mörgum ungum og efnilegum uppöldum leikmönnum í vetur og afar gott að þeir njóti áfram leiðsagnar frá reyndari leikmönnum liðsins,“ segir í tilkynningu KA.

KA sækir Selfoss heim í Sethöllina á Selfossi í 1. umferð Olísdeildar á laugardaginn. Fimm dögum síðar tekur KA á móti Fram í KA-heimilinu í annarri umferð.

Leikjadagskrá Olísdeilda.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -