- Auglýsing -
Hrannar Guðmundsson hefur verið ráðinn inn í þjálfarateymi karlaliðs FH og mun verða Sigursteini Arndal og Ásbirni Friðrikssyni til halds og trausts á tímabilinu.
Hrannar var síðast þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar en hætti í vor eftir hálft annað ár við stjórnvölin. Einnig hefur hann verið í þjálfarateymum karlaliða ÍR og Aftureldingar.
FH mætir Aftureldingu í 1. umferð Olísdeildar karla í Kaplakrika annað kvöld klukkan 19.30.
Fyrst var sagt frá ráðningu Hrannars í seinni upphitunarþætti Handkastsins sem fór í loftið í gærkvöld. Handknattleiksdeild FH staðfesti komu Hrannars í tilkynningu í kvöld.
Þjálfarar – helstu breytingar 2023
- Auglýsing -