- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Guðmundur sæmdur heiðurskrossi ÍSÍ og gullkrossi HSÍ

Olga Bjarnadóttir 2. varaforseti ÍSÍ, Guðmundur B. Ólafsson, og Hafsteinn Pálsson stjórnarmaður ÍSÍ. Olga og Hafsteinn afhentu Guðmundi heiðurskrossinn fyrir hönd ÍSÍ. Ljósmynd/HSÍ
- Auglýsing -


Guðmundur B. Ólafsson var sæmdur heiðurskrossi ÍSÍ fyrir framúrskarandi störf fyrir HSÍ er hann lét af embætti formanns HSÍ á ársþingi sambandsins í gær eftir 12 ár og alls 16 ár í stjórn sambandsins.

Guðmundur hlaut einnig gullkross HSÍ, æðsta heiðursmerki HSÍ á ársþinginu, og var það Júlíus Hafstein heiðursformaður HSÍ sem afhenti Guðmundi krossinn sem aðeins örfáir hafa hlotið.

Guðmundur B. Ólafsson fráfarandi formaður HSÍ og Júlíus Hafstein heiðursforseti HSÍ. Ljósmynd/HSÍ


Reynir Þór Stefánsson fráfarandi varaformaður HSÍ og Páll Þórólfsson fráfarandi formaður landsliðsnefndar karla var afhent gullmerki HSÍ fyrir áralöng störf sín fyrir sambandið.

Reynir Þór Stefánsson, Páll Þórólfsson og Guðmundur B. Ljósmynd/HSÍ


Áður en þinginu var slitið færði Jón Halldórsson nýkjörinn formaður HSÍ forvera sínum gjafir í þakklætisskyni fyrir þrotlausa vinnu fyrir sambandið um árabil.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -