Stórleikur verður í Sethöllinni á Selfossi í kvöld þegar Selfoss og ÍR mætast í úrslitaleik um sæti í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Liðin tvö er jöfn að styrkleika og höfnuðu í fjórða og fimmta sæti Olísdeildar í vetur.
Selfoss vann fyrstu viðureign liðanna í úrslitakeppninni, 31:27, í Sethöllinni fyrir viku. ÍR svaraði fyrir sig með því að vinna heimaleik sinn á laugardaginn eftir mikla spennu, 23:22, þrátt fyrir að hafa verið fimm mörkum undir í hálfleik.
Lið Selfoss og ÍR hafa marga hildi háð síðustu ár og e.t.v. skemmst að minnast fimm leikja rimmu þeirra í úrslitum umspils Olísdeidar kvenna fyrir tveimur árum.
Jafnar Afturelding metin?
Auk leiksins á Selfossi í kvöld sækir Valur liðsmenn Aftureldingar heim að Varmá í annarri umferð undanúrslita Olísdeildar karla.
Fyrsta viðureign Vals og Aftureldingar var æsilega spennandi. Framlengja þurfti til að knýja fram sigur á annan hvorn veginn. Fór svo að Valur hafði betur, 35:33.
Leikir kvöldsins
Olísdeild kvenna, undanúrslit, oddaleikur:
Sethöllin: Selfoss – ÍR (1:1), kl. 19.30.
Olísdeild karla, undanúrslit, annar leikur:
Varmá: Afturelding – Valur (0:1), kl. 19.30.
- Leikirnir verða sendir út á Handboltapassanum. Einnig verður mögulegt að fylgjast með leik Selfoss og ÍR í opinni dagskrá í sjónvarpi Símans.
- Textalýsingar og stöðuuppfærslur verða aðgengilegar hjá HBStatz.
Olís kvenna: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2025
Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2025