U17 ára landslið kvenna tekur þessa dagana þátt í B-deild Evrópumótsins í handknattleik. Leikið er í Klaipeda í Litáen. Íslenska liðið hefur byrjað vel í mótinu og unnið báða leiki sína, gegn Lettlandi 35:23 og á móti Tyrkjum, 28:19.
Næsti leikur Íslands verður gegn Hvít-Rússum á miðvikudag og lokaleikur riðlakeppninnar verður daginn eftir á móti Pólverjum.
Mótshaldarar Klaipeda hafa tekið nokkrar myndir í leikjum íslenska landsliðsins síðustu daga. Þær er að finna hér fyrir neðan.
- Auglýsing -