Afturelding og Valur mætast í fjórða sinn í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik að Varmá í kvöld. Flautað verður til leiks að Varmá klukkan 19.30.
Ef Afturelding vinnur leikinn í kvöld kemur til oddaleiks á föstudaginn á heimavelli Vals. Verður það þá einn fjögurra leikja sem fram fer í úrslitakeppninni og í umspilinu á föstudag.
Valur vann fyrstu viðureignina við Aftureldingu eftir framlengingu, 35:33. Afturelding svaraði fyrir sig með átta marka sigri, 31:23, að Varmá á þriðjudaginn í síðustu viku.
Valur hafði betur á Hlíðarenda á föstudagskvöld, 30:29, í afar spennandi leik. Kurr hefur verið í mörgum stuðningsmönnnum Aftureldingar eftir leikinn vegna frammistöðu dómaranna.
Sigurliðið í rimmu Afturelding og Vals mætir Fram í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Fram komst í úrslit í gærkvöld eftir tvíframlengdan háspennuleik við FH.
Leikur Aftureldingar og Fram í kvöld verður sendur á Handboltapassanum auk þess sem textalýsing verður á handbolti.is.