Elvar Ásgeirsson skoraði fimm mörk í sex skotum þegar Ribe-Esbjerg vann Nordsjælland, 29:25, í þriðju umferð umspilskeppni fimm af sex neðstu liðum dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag. Leikið var á heimavelli Nordsjælland. Ribe-Esbjerg var sjö mörkum yfir í hálfleik, 18:11.
Ágúst Elí Björgvinsson varði eitt skot af sjö sem hann fékk á sig þá stund sem hann fékk til þess að láta ljós sitt skína.
Ribe Esbjerg hefur unnið tvo leiki af þremur í umspilinu og eina viðureign eftir gegn Grindsted GIF á laugardaginn. Liðið sem hafnar í neðsta sæti umspilsins leikur við lið úr næst efstu deild um keppnisrétt í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Sem stendur reka TMS Ringsted og Grindsted GIF lestina í umspilskeppninni.