- Auglýsing -
Óðinn Freyr Heiðmarsson hefur samið við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2027. Óðinn, sem leikur í stöðu línumanns, er uppalinn Þórsari frá Akureyri en hefur undanfarin ár leikið með Fjölni. Hann lék 22 leiki með Fjölni í Olísdeildinni á nýafstöðnu tímabili og skoraði 62 mörk. Einnig lét Óðinn Freyr til sín taka í vörninni.
„Það er mikið gleðiefni að Óðinn hafi ákveðið að taka slaginn í Breiðholtinu á næstu árum og bindum við miklar vonir við hann,“ segir í tilkynningu ÍR.
Fyrrverandi samherji Óðins Freys hjá Fjölni, Elvar Otri Hjálmarsson, gekk einnig til liðs við ÍR á dögunum. Elvar Otri millilenti reyndar hjá Gróttu um tveggja ára skeið.
- Auglýsing -