Búist er við allt að 100 stuðningsmönnum spænska liðsins BM Porriño til Rekjavíkur vegna síðari úrslitaleiks Vals og BM Porriño í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í N1-höllinni á Hlíðarenda á laugardaginn. Eftir því sem fram kemur í frétt atlantico verða 70 stuðningsmenn í hópferð sem sett hefur verið upp. Auk þess er von á um 30 stuðningsmönnum til viðbótar sem ferðast á eigin vegum.
Miðasala á síðari úrslitaleikinn er á stubb.is.
Mikil spenna er í loftinu fyrir síðari úrslitaleiknum enda stendur rimman galopin eftir jafntefli, 29:29, í fyrri viðureigninni sem fram fór í Porriño í suðvestur-Galisíu á Spáni síðasta laugardag.
Valur stefnir á að fylla N1-höllina í úrslitaleiknum og hefur miðasala farið líflega af stað. Flautað verður til leiks klukkan 15.
Eiga leik í kvöld
Áður en BM Porriño leggur af stað til Íslands leikur liðið síðari leikinn við BM Elche í átta liða úrslitum úrslitakeppni spænsku 1. deildarinnar á heimavelli í kvöld. BM Elche vann fyrri viðureignina með 11 marka mun fyrir viku, 32:21. Leikmenn BM Porriño eiga erfitt verk fyrir höndum í kvöld ætli þeir sér að komast í undanúrslit.