- Auglýsing -
Hafist verður handa við að draga í riðla lokakeppni Evrópumóts karla í handknattleik í Teatersalen í Herning klukkan 17. Mótið fer fram í janúar á næsta ári í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Dregið verður í sex fjögurra liða riðla en að vanda taka 24 þjóðir þátt í mótinu, þar á meðal Ísland sem er í öðrum styrkleikaflokki.
Handbolti.is fylgist með framvindunni í Herning í textalýsingu hér fyrir neðan.
- Auglýsing -