- Auglýsing -
Óhætt er að segja að tveir stórleikir verði í fyrstu umferð Coca Cola-bikars karla í handknattleik þegar leikið verður 6. október en dregið var í morgun.
Akureyrarliðin Þór og KA drógust saman og eins Haukar og Selfoss og fara leikirnir fram á heimavöllum Þórs og Hauka. Þriðja viðureign fyrstu umferðar verður á milli ÍBV2 og Vængja Júpíters. ÍBV2 á heimaleik.
Eftirtalin lið voru í pottinum í morgun en voru ekki dregin:
Fjölnir, Fram, Grótta, HK, ÍF Mílan, ÍR, Kría, Stjarnan, Víkingur.
Þessi lið sátu hjá þegar dregið var í karlaflokki í morgun:
Valur, ÍBV, Afturelding, FH.
Eftir að ofangreindum þremur leikjum verður lokið í byrjun október verður dregið í 16-liða úrslit keppninnar í karla- og kvennaflokki.
- Auglýsing -