- Auglýsing -
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, landsliðsmaður í handknattleik var valinn besti leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Skanderborg AGF í kosningu sem félagið stóð fyrir á meðal stuðningsmanna félagsins. Donni kom til félagsins síðasta sumar og hefur sannarlega slegið í gegn og m.a. verið valinn leikmaður mánaðarins í apríl í dönsku úrvalsdeildinni.
Donni varði í 12. sæti yfir markahæstu leikmenn dönsku úrvalsdeildarinnar með 146 mörk í 32 leikjum. Hann gaf 69 stoðsendingar og hafnaði í 20. sæti á lista þeirra sem flestar stoðsendingar gáfu.
- Auglýsing -