- Auglýsing -
Orra Frey Þorkelssyni og liðsfélögum í Sporting Lissabon varð ekkert á í messunni í kvöld þegar þeir sóttu Maritimo heim til Madeira í næsta síðustu umferð úrslitakeppni fjögurra efstu liða portúgölsku 1. deildarinnar í handknattleik. Þeir unnu með níu marka mun, 32:23, og hafa eins vinnings forskot á FC Porto áður en liðin mætast í lokaumferðinni eftir viku í Lissabon.
Orri Freyr var markahæstur hjá Sporting ásamt Martím Costa með sex mörk.
Sporting tekur á móti Porto í lokaumferð úrslitakeppni fjögurra efstu liðanna eftir viku. Sporting vann viðureign liðanna í Porto í fyrri umferðinni, 35:32.
- Auglýsing -