- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Magdeburg heldur pressu á Berlínarrefina

Ómar Ingi Magnússon leikmaður SC Magdeburg. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


SC Magdeburg heldur pressu á Füchse Berlin í kapphlaupi liðanna um þýska meistaratitilinn með sigri á Lemgo, 31:29, á útivelli í 32. umferð deildarinnar af 34. Meiðsli Gísla Þorgeirs Kristjánssonar á þriðju mínútu leiksins skyggðu á sigurinn.

Magdeburg er stigi fyrir ofan Füchse Berlin sem sækir Stuttgart heim í dag og mun fara upp fyrir Magdeburg með sigri.


Leikmenn Lemgo, sem hafa átt gott tímabili, veittu leikmönnum Magdeburg harða keppni í leiknum í dag frá upphafi til enda. Magdeburg var marki yfir í hálfleik, 15:14.

Ómar Ingi Magnússon, leikmaður Magdeburg, skoraði þrjú mörk, tvö þeirra úr vítakasti. Philipp Weber skoraði 11 mörk og var markahæstur. Felix Claar var næstur með sjö mörk.

Lukas Hutecek og Tim Suton voru markahæstir hjá Lemgo með sjö mörk hvor. Lemgo er í áttunda sæti þýsku 1. deildarinnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -