- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Pereira tekur við af Davis í rúmensku höfuðborginni

Paulo Pereira væntanlegur þjálfari Dinamo Búkarest. Mynd/EPA
- Auglýsing -


Paulo Pereira landsliðsþjálfari Portúgal í handknattleik karla tekur í sumar við þjálfun rúmenska meistaraliðsins Dinamo Búkarest. David Davis, sem tók við þjálfun Dinamo fyrir ári hefur tekið pokann sinn. Óvíst er hvað hann tekur sér næst fyrir hendur.


Pereira hefur undanfarið ár þjálfað Celje Lasko en eins og kom fram á handbolti.is á dögunum þá sagði hann starfi sínu lausu þegar ljóst var að liðið ætti ekki möguleika á vinna meistaratitilinn í Slóveníu.

Dinamo hefur verið yfirburðalið í rúmenskum karla handknattleik síðasta áratuginn. Þrátt fyrir að talsvert hafi verið lagt í leikmannahópinn og þjálfarateymið þá hefur árangur í Meistaradeild Evrópu látið bíða eftir sér.

Haukur Þrastarson lék með Dinamo á nýliðnu keppnistímabili og varð bæði deildar- og bikarmeistari. Hann flytur til Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi í sumar.

Þekkir til í Rúmeníu

Pereira þekkir til í rúmenskum handknattleik. Hann þjálfaði CSM Búkarest frá 2017 til 2019.

Undir stjórn Pereira hefur portúgalska landsliðinu vaxið fiskur um hrygg síðustu árin. Það tók fyrst þátt í Ólympíuleikum á síðasta ári og komst í undanúrslit á HM í janúar sl en tapaði naumlega fyrir Frökkum í leiknum um bronsverðlaun.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -