Viktor Gísli Hallgrímsson kveður Wisla Plock sem pólskur meistari. Hann lék sinn síðasta leik fyrir félagið í kvöld þegar Wisla Plock lagði Kielce í vítakeppni í síðari úrslitaleik liðanna um pólska meistaratitilinn, 25:24. Vítakeppnina vann Wisla, 3:2.
Viktor Gísli sem gengur til liðs við Barcelona í sumar varð síðast landsmeistari í Danmörku voruð 2022 með GOG.
Níundi titillinn
Þetta er um leið annað árið í röð sem Wisla vinnur pólska meistaratitilinn og í níunda sinn alls. Kielce vann bikarkeppnina fyrr á tímabilinu.
Þegar Wisla varð meistari fyrir ári hafði félagið ekki unnið meistaratitilinn frá 2011. Kielce vann 12 ár í röð.
Viktor Gísli stóð í marki Wisla Plock þegar á leikinn leið í kvöld en varði ekki skot, eftir því sem næst verður komist. Gamla brýnið, Mirko Alilović, stóð meginhluta leiksins í markinu, m.a. í vítakeppninni í lokin.
Eftir eins marks sigur Wisla Plock, 30:29, í fyrri viðureigninni var ljóst að leikmenn Kielce legðu allt í sölurnar í kvöld en sjaldan er gefið nokkuð eftir þegar tvö öflugustu liðin í pólska handboltanum mætast.
Það vafðist nokkuð fyrir mönnum beggja liða að skora mörk og eftir fyrri hálfleik var staðan 10:7 fyrir. Aðeins lifnaði yfir mönnum í síðari hálfleik og eftir nokkurn darraðardans í lokin skildu liðin jöfn. Vegna þess að jafntefli eru ekki tekin gild var umsvifalaust farið í vítakeppni þar sem Viktor Gísli og félagar höfðu betur.