KA-maðurinn Dagur Árni Heimisson hefur skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til félagsins eftir að Ágúst Þór Jóhannsson tók við stjórnvölum karlaliðsins.
Á heimsíðu KA segir að Dagur Árni hafi verið seldur til Vals fyrir metfé en láta þess ekki getið um hversu mikla fjármuni er að ræða.
Dagur Árni sem leikið hefur með KA er aðeins 18 ára gamall og mikil og góð styrking fyrir leikmannahóp Vals. Hann skoraði 132 mörk á síðasta keppnistímabili fyrir KA í Olísdeildinni og var einn af burðarásum liðsins þrátt fyrir ungan aldur. Hann er einn af lykilmönnum 19 ára landsliðs Íslands sem tekur þátt í lokakeppni HM í Egyptalandi í ágúst. Hann var valinn í úrvalslið á lokakeppni EM 18 ára landsliða sl. sumar þegar íslenska liðið hafnaði í 4. sæti.
„Gríðarlega ánægður”
„Ég er gríðarlega ánægður með að fá Dag Árna til liðs við félagið. Hann er ungur og mjög efnilegur leikmaður með mikla hæfileika og frábært viðhorf. Hann getur náð mjög langt en um leið þurfum við að gefa honum tíma til að aðlagast hjá félaginu og um leið þeim breytingum sem því fylgir að flytja á milli landshluta. Ég hlakka til samstarfsins við hann líkt og aðra leikmenn liðsins,” segir Ágúst Þór þjálfari Vals í tilkynningu.
Þess má geta að faðir Dags Árna, Heimir Örn Árnason lék með Val fyrr á árum.
„Það er auðvitað mikil eftirsjá eftir góðum dreng, bæði innan vallar og utan. En við erum jafnframt stolt af því starfi sem fram fer í yngri flokkum félagsins sem og því tækifæri sem ungum leikmönnum í KA er gefið til að láta ljós sitt skína,” segir m.a. í tilkynningu á heimasíðu KA.
Karlar – helstu félagaskipti 2025