- Auglýsing -
Gísli Þorgeir Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður SC Magdeburg staðfesti við Vísis í dag að hann þurfi ekki að gangast undir aðgerð vegna höggs sem hann fékk á vinstri öxlina í viðureign Magdeburg og Lemgo síðasta sunnudag. Beðið hefur verið með óþreyju eftir fregnum af Gísla Þorgeiri eftir byltuna hörðu sem hann fékk.
Gísli hefur oft meiðst alvarlega á báðum öxlum.
Í frétt Vísis kemur ennfremur fram að óvíst sé að Gísli Þorgeir leiki með Magdeburg í undanúrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í Köln um aðra helgi. Magdeburg mætir Evrópumeisturum Barcelona í undanúrslitum. Daginn eftir leikur liðið um sigurlaunin eða þriðja sætið, allt eftir því hvernig gengur gegn Barcelona.
- Auglýsing -