- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Verður upphafsleikur EM 2028 á Bernabéu með metfjölda áhorfenda?

Estadio Santiago Bernabéu í Madríd. Uppi eru hugmyndir um að upphafsleikur EM karla í handbolta 2028 fari fram á vellinum. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Francisco Blázquez, forseti spænska handknattleikssambandsins, á sér þann draum að upphafsleikur Evrópumóts karla í handknattleik 2028 fari fram á Estadio Santiago Bernabéu í Madríd, heimavelli knattspyrnuliðsins Real Madrid að viðstöddum allt að 80 þúsund áhorfendum.


„Ég vil að opnunarleikurinn fari þar fram, [ Estadio Santiago Bernabéu ]. Ég er ennfremur að vinna í að leikir eins riðils EM 2028 fari fram í Madríd með það fyrir augum að efla áhuga á handbolta í höfuðborginni,“ sagði Blázquez í viðtali við Marca. Fyrir utan upphafsleikinn standi til að leikið verði í íþróttahöllum í Madríd.

Bernabéu-leikvangurinn, heimavöllur Real Madrid, er talinn vera fullkominn vettvangur fyrir handknattleiksleik með 80.000 sætum. „Við höfum þegar átt viðræður við Real Madrid,“ sagði forsetinn. Hins vegar getur fyrirhuguð dagsetning, 13. janúar 2028, stangast á við annan viðburð sem Real Madrid hefur í hyggju á svipuðum tíma.

Evrópska handknattleikssambandið (EHF) hefur lagst á árar með spænska handknattleikssambandinu við að þessi metnaðarfullu áform verði að veruleika.

Metleikur í Düsseldorf

Verði af þeim áformum að upphafsleikur EM 2028 fari fram á Estadio Santiago Bernabéu yrði það mesti fjöldi áhorfenda á handboltaleik. Núverandi met er frá EM karla 2024 í Þýskalandi þegar 53.000 áhorfendur voru á upphafsleik mótsins milli Þýskalands og Sviss á knattspyrnuleikvangi í Düsseldorf.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -