Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eru dómarapar ársins í Olísdeildunum á nýliðnu keppistímbili. Hlutu þeir viðurkenningu á uppskeruhátíð Handknattleikssambands Íslands í gær. Þetta er um leið í 17. sinn á síðustu 18 árum sem Anton er annar hluti dómarapars ársins. Hann hefur hreppt hnossið árlega frá 2007 að árunum 2017 og 2020 undaskildum. Anton Gylfi á ennþá nokkuð í land með að jafna met Stefáns Arnaldssonar.
Heimir Örn Árnason og Sigurður Hjörtur Þrastarson voru valdir dómarapar ársins 2017 og þremur árum síðar féll niður val á dómurunum ársins eins og öðru sem tengdist viðurkenningum fyrir Íslandsmótið sem varð endasleppt vorið 2020 sökum covid.
Jónas hefur verið annar hluti af dómarapari ársins með Antoni Gylfa í tíu skipti. Áður var Hlynur Leifsson annar hluti dómarapars ársins með Antoni Gylfa í sjö skipti.
Stefán á metið
Þótt Anton Gylfi hafi verið dómari ársins sautján sinnum á hann enn nokkuð í að jafna met Stefáns Arnaldssonar. Stefán var nítján sinnum valinn dómari ársins frá 1987 til 2006 þegar hann sagði skilið við dómgæslu. Átta sinnum var Rögnvald Erlingsson með Stefáni í dómarapari, Gunnar Viðarsson var jafn oft og þrisvar var Stefán valinn dómari ársins með Ólafi Haraldssyni.
Aðeins einu sinni ár árunum 1987 til og með 2006 var Stefán ekki annar hluti af dómarapari ársins. Það var 1993 þegar Skagamennirnir Gunnar Viðarsson og Sigurgeir Sveinsson sköruðu framúr öðrum dómurum í efstu deild.