Piltarnir í 17 ára landsliði Íslands í handknattleik unnu landslið Sviss, 34:30, í kaflaskiptum leik í annarri umferð af þremur á Nordic Open mótinu í Færeyjum í dag. Leikið var í nýrri þjóðarhöll Færeyinga, Við Tjarnir.
Þetta er annar sigur íslenska liðsins á mótinu. Í gærkvöld vann það færeyska liðið með einu marki, 29:28.
Í lokaumferð mótsins á morgun leikur íslenska liðið við það þýska sem mætir færeyska liðinu síðari í dag. Þjóðverjar töpuðu fyrir Svisslendingum í gær með eins marks mun, 28:27.
Íslenska liðið var sex mörkum yfir í hálfleik, 17:11, en minnstur var munurinn tvö mörk, 22:20, um miðjan síðari hálfleik.
Mörk Íslands: Gunnar Róbertsson 9, Logi Finnsson 5, Anton Frans Sigurðsson 5, Matthías Dagur Þorsteinsson 4, Alex Unnar Hallgrímsson 3, Freyr Aronsson 3, Patrekur Smári Arnarsson 2, Örn Kolur Kjartansson 2, Kári Steinn Guðmundsson 1.
Varin skot: Sigurmundur Gísli Unnarsson 9.