- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Orri Freyr hafði betur í Íslendingaslag í bikarúrslitum í Portúgal

Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting fagna sigri í bikarkeppninni í Portúgal. Ljósmynd/Portúgalska handknattleikssambandið
- Auglýsing -


Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting fögnuðu sigri á Porto í úrslitaleik portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik síðdegis, 28:27. Aðeins er vika síðan Sporting vann Porto í síðustu umferð úrslitakeppninnar og innsiglaði sér meistaratitilinn annað árið í röð. Sporting varð einnig bikarmeistari á síðasta ári.


Orri Freyr var næst markahæstur leikmanna Sporting í úrslitaleiknum í dag með fimm mörk.

Þorsteinn Leó Gunnarsson var atkvæðamestur leikmanna Porto með átta mörk.

Porto var lengi vel með frumkvæðið í úrslitaleiknum. M.a. var tveggja marka munur á liðunum í hálfleik, 15:13, Porto í hag. Þegar á leið síðari hálfleik jafnaði Sporting metin, 22:22, þegar um tíu mínútur voru til leiksloka og náði um skeið þriggja marka forskoti, 27:24.

Þar með eru handknattleiksmenn í Portúgal komnir í sumarleyfi eftir langt og strangt keppnistímabil.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -