- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Minden í efstu deild á ný – Arnór og liðsfélagar unnu deildina með yfirburðum

Markus Pütz t.v., Arnór Þór Gunnarsson fyrir miðri mynd með Fabian Gutbrod íþróttastjóra sér til vinstri handar. Ljósmynd/ heimasíða Bergsicher HC
- Auglýsing -


Gamla stórliðið GWD Minden tryggði sér sæti í efstu deild á nýjan leik eftir nokkurra ára fjarveru í spennandi lokaumferð þýsku 2. deildarinnar í handknattleik í gær. Minden-liðið fylgir þar með lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer HC upp um deild en nokkrar vikur eru liðnar síðan Bergischer tryggði sér efsta sæti deildarinnar eftir að hafa verið nokkra yfirburði í 2. deild lengst af leiktíðar.


Minden vann nauman sigur á Ferndorf, 31:30, í hnífjafnri viðureign á útivelli. Á sama tíma tapaði TV Hüttenberg sem stóð betur að vígi en Minden fyrir lokaumferðina, fyrir Ludwigshafen, 29:27, á útivelli.

Ellefu stiga forskot

Bergischer HC vann Dessau-Rosslauer HV 06 á útivelli í gær, 34:28, og endar 11 stigum fyrir ofan Minden í efsta sæti. Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson skoraði eitt mark fyrir Bergischer en Tjörvi Týr Gíslason var ekki í leikmannahópnum fremur en í síðustu leikjum.

Daníel Þór kvaddi

Daníel Þór Ingason lék sinn síðasta leik fyrir Balingen-Weilstetten í gær þegar liðið vann TV Großwallstadt, 34:28, á heimavelli. Daníel Þór skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar í kveðjuleiknum en hann flytur til Vestmannaeyja í sumar og leikur með ÍBV á næsta keppnistímabili. Balingen-Weilstetten varð í fjórða sæti og leikur þar með annað tímabilið í röð í 2. deild á næsta vetri. Balingen féll úr 1. deild fyrir ári ásamt Bergischer HC.

Elmar í sjöunda sæti

Elmar Erlingsson og liðsfélagar í Nordhon-Lingen töpuðu á heimavelli fyrir Dormagen, 34:28, en þær lokatölur voru vinsælar í síðustu umferðinni. Elmar náði sér ekki á strik en skoraði þó eitt mark og gaf þrjár stoðsendingar.

Hákon skoraði fjögur

Hákon Daði Styrmisson skoraði fjögur mörk í fjögurra marka tapið Eintracht Hagen á heimavelli, 29:25, fyrir TuS N-Lübbecke. Hagen hafnaði í áttunda sæti.


Lokastaðan í þýsku 2. deildinni í karlaflokki:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -