- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Füchse Berlin þýskur meistari í fyrsta sinn – Viggó bjargaði Erlangen

Viggó Kristjánsson og félagar í HC Erlangen halda sæti sínu í efstu deild í Þýskalandi. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Füchse Berlin varð í dag þýskur meistari í handknattleik karla í fyrsta skipti. Berlínarliðið vann Rhein-Neckar Löwen í lokaumferðinni, 38:33, í Mannheim. Füchse Berlin var einu stigi fyrir ofan meistara síðasta árs, SC Magdeburg, sem vann Bietigheim, 35:25.

Viggó Kristjánsson og liðsfélagar í HC Erlangen tókst að halda sæti sínu í deildinni með því að leggja HSG Wetzlar á útivelli, 25:21. HC Erlangen hefur verið í fallhættu nánast frá fyrstu umferð. Koma Viggós til félagsins eftir áramót gjörbreytti gengi liðsins til hins betra.

  • Viggó hélt uppteknum hætti í dag og skoraði níu mörk fyrir Erlangen, tvö úr vítaköstum.
  • Lokastaðan í þýsku 1. deildinni er neðst í þessari grein.
  • Viktor Petersen Norberg skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu auk þess að vera vikið einu sinni af leikvelli. Viktor færir sig um set í sumar og leikur með Elbflorenz í Dresden á næsta tímabili.
  • Bietigheim varð næst neðst og fellur í 2. deild ásamt Potsdam sem er fyrir löngu fallið. Í staðinn færast Bergischer HC og GWD Minden upp í efstu deild.
  • MT Melsungen varð í þriðja sæti deildarinnar. Elvar Örn Jónsson skoraði tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar í öruggum sigri á Potsdam á útivelli, 31:26. Þetta var síðasti leikur Elvars Arnar en hann skiptir yfir til Magdeburg í sumar.
    Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyrir Melsungen í dag.
  • Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk, þar af fimm úr vítaköstum í sigurleik Magdeburg á heimavelli Bietigheim. Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki með vegna meiðsla.
  • Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson skoruðu fjögur mörk hvor þegar Gummersbach vann Hannover-Burgdorf á heimavelli, 39:29. Báðum var vikið einu sinni af leikvelli. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach.
  • Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.
  • Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark og var einu sinni vísað af leikvelli þegar Göppingen sótti stig til Lemgo, 29:29.
  • Stuttgart bjargaði sér frá falli með því að leggja SC DHfK Leipzig, 29:28, á heimavelli. Andri Már Rúnarsson var markahæstur hjá Leipzig með sjö mörk ásamt Franz Semper. Rúnar Sigtryggsson er þjálfari SC DHfK Leipzig.
  • Tim Freihöfer skoraði 11 mörk fyrir Füchse Berlin og Mathias Gidsel 10 mörk í sigurleiknum í Mannheim þegar liðið tryggði sér þýska meistaratitilinn í fyrsta skipti.


Önnur úrslit í dag:
Flensburg – Hamburg 40:27 (19:22).
Kiel – Eisenach 36:35 (16:20).

Lokastaðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -