- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Yngsti meistaraþjálfarinn síðan Jóhann Ingi stýrði Essen til sigurs 1987

Jaron Siewert þjálfari Füchse Berlin. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Jaron Siewert þjálfari Füchse Berlin var í dag yngsti maðurinn til þess að stýra liði til sigurs í þýsku 1. deildinni í handknattleik. þegar Füchse Berlin vann þýska meistaratitilinn í karlaflokki í fyrsta sinn. Siewert er 31 árs gamall.


Siewert er ári yngri en Jóhann Ingi Gunnarsson þegar hann stýrði Tusem Essen til sigurs í þýsku 1. deildinni vorið 1987. Jóhann Ingi var þangað til í dag yngsti þjálfarinn sem stýrir liði til sigurs í deildinni.

Jóhann Ingi Gunnarsson handknattleiksþjálfari var þangað til í dag yngsti þjálfarinn til að stýra liði til sigurs í þýsku 1. deildinni.

Siewert hefur þjálfað Füchse Berlin í fimm ár eða frá 26 ára aldri. Jóhann Ingi var 27 ára gamall þegar hann tók við þjálfun THW Kiel 1982 og var í fjögur ár þangað til hann færði sigur yfir til Tusem Essen. Meðan Jóhann Ingi var hjá Kiel, vorið 1985, var hann kjörinn þjálfari ársins í þýsku 1. deildinni, fyrstur Íslendinga, aðeins þrítugur að aldri.

Siewert var á dögunum kjörinn þjálfari ársins í sömu deild 40 árum síðar á eftir áðurnefndum Jóhanni Inga.

Sjá einnig: ​​​​​Íslendingar komu, sáu og sigruðu

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -