- Auglýsing -
- Auglýsing -

Meistaradeild: Íslendingar í eldlínunni í 45 ár

Melvyn Richardson og félagar í Barcelona fagna sæti í undanúrslitum Meistaradeildar eftir sigur á Pick Szeged í átta liða úrslitum 1. maí sl. Þeir eiga titil að verja. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Á morgun, laugardag, verður leikið til undanúrslita í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla í Lanxess-Arena í Köln. Klukkan 13 mætast Þýskalandsmeistarar Füchse Berlin og Nantes frá Frakklandi og klukkan 16 eigast við þýska liðið SC Magdeburg og Spánarmeistarar Barcelona sem unnu Meistaradeildina á síðasta ári og hafa oftast staðið uppi sem sigurvegarar.

Sigurlið undanúrslita mætast í úrslitum á sunnudaginn klukkan 16 en tapliðin keppa um bronsverðlaun klukkan 13 sama dag.

Hér fyrir neðan eru helstu afrek Íslendinga rakin í Evrópukeppni meistaraliða og síðar Meistaradeild Evrópu frá 1980 til dagsins í dag.

1980: Valur lék til úrslita við Grosswallstadt  í Evrópukeppni meistaraliða og tapaði, 21:12. Vann Atléticio Madrid í undanúrslitum. Þjálfari Vals var Hilmar Björnsson. 

1988: Alfreð Gíslason lék með Tusem Essen í úrslitaleikjum en tapaði fyrir CSKA Moskvu. Þjálfari Essen var Jóhann Ingi Gunnarsson. 

Ólafur Stefánsson í leik með Magdeburg í Meistaradeildinni 2002. Ljósmynd/EPA

2002: Magdeburg (1. sæti eftir tvo úrslitaleiki við Veszprém) – Alfreð Gíslason þjálfari, Ólafur Stefánsson var leikmaður.

2005: Ciudad Real (1. sæti): Ólafur Stefánsson leikmaður. 


2008: Ciudad Real (1. sæti): Ólafur Stefánsson leikmaður. 

2009: Ciudad Real (1. sæti): Ólafur Stefánsson leikmaður. 

Eftir að úrslitahelgin (final4) var tekin upp:

2010: Kiel (1. sæti): Alfreð Gíslason, þjálfari, Aron Pálmarsson, leikmaður

2011: Rhein-Neckar Löwen (4. sæti): Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfari, Guðjón Valur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson og Róbert Gunnarsson, leikmenn. 

2012: Kiel (1. sæti): Alfreð Gíslason, þjálfari, Aron Pálmarsson, leikmaður.

Dagur Sigurðsson stýrir Füchse Berlin í leik árið 2013. Ljósmynd/EPA

AG Köbenhavn (3. sæti): Arnór Atlason, Guðjón Valur Sigurðsson, Snorri Steinn Guðjónsson og Ólafur Stefánsson, leikmenn. 

Füchse Berlin (4. sæti): Dagur Sigurðsson, þjálfari. 

Þórir Ólafsson í leik með Kielce í Meistaradeildinni 2013 gegn Pick Szeged. Ljósmynd/EPA

2013: Vive Kielce (3. sæti): Þórir Ólafsson, leikmaður. 

Kiel (4. sæti) : Alfreð Gíslason, þjálfari, Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson, leikmenn.
Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson dæmdu fyrri undanúrslitaleikinn á laugardag. 

2014:  Flensburg (1. sæti): Ólafur Gústafsson, leikmaður.

Kiel (2. sæti): Alfreð Gíslason, þjálfari, Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson, leikmenn. Aron var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitahelgarinnar, MVP.

Guðjón Valur fagnar marki með Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar 2015. Mynd/EPA

2015:  Barcelona (1. sæti): Guðjón Valur Sigurðsson. 

Kiel (4. sæti): Alfreð Gíslason, þjálfari, Aron Pálmarsson, leikmaður. 

2016: Veszprém (2. sæti): Aron Pálmarsson, leikmaður. Hann var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitahelgarinnar, MVP.

PSG (3. sæti): Róbert Gunnarsson, leikmaður. 

Alfreð Gíslason með THW Kiel í Meistaradeildinni 2018. Ljósmynd/EPA

Kiel (4. sæti): Alfreð Gíslason, þjálfari.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn um 3. sætið.

2017:  Veszprém (3. sæti): Aron Pálmarsson, leikmaður. 

2018:  Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu síðari undanúrslitaleikinn. 

2019:  Barcelona (3. sæti): Aron Pálmarsson, leikmaður.

2020: Barcelona (2. sæti): Aron Pálmarsson, leikmaður.

Aron Pálmarsson með þáverandi sigurstyttu Meistaradeildar Evrópu á öxlunum eftir sigur THW Kiel í Meistaradeildinni 2010. Ljósmynd/EPA

2021: Barcelona (1. sæti): Aron Pálmarsson, leikmaður.

Aalborg Håndbold (2. sæti): Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari.

2022: Vive Kielce (2. sæti): Haukur Þrastarson, leikmaður. Tók þátt í undanúrslitaleiknum en settur út fyrir úrslitaleikinn.  Sigvaldi Björn Guðjónsson lék ekki með Kielce vegna meiðsla.

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson fagna sigri í Meistaradeildinni fyrir tveimur árum. Ljósmynd/EPA

2023: SC Magdeburg (1.sæti): Gísli Þorgeir Kristjánsson lék með í undanúrslitum gegn Barcelona. Hann fór úr axlarlið en lék óvænt með í úrslitaleiknum daginn eftir og fór á kostum. Var valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar. MVP. Ómar Ingi Magnússon var ekki með vegna meiðsla en tók við gullverðlaunum enda lék hann helming tímabilsins.

2023: Kielce (2. sæti), lið Hauks Þrastarsonar. Haukur var ekki með vegna meiðsla. 

2023: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu síðari undanúrslitaleikinn. 

2024: SC Magdeburg (4. sæti):  Gísli Þorgeir Kristjánsson, Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon léku með SC Magdeburg sem tapaði fyrir Aalborg Håndbold í undanúrslitum, 28:26. Einnig tapaði Magdeburg fyrir THW Kiel í leiknum um þriðja sætið, 32:28, eftir afleitan fyrri hálfleik, staðan var 23:14.

2025: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma undanúrslitaleik Füchse Berlin og Nantes. 

2025: Ómar Ingi Magnússon leikur með Magdeburg í undanúrslitum gegn Barcelona.  Gísli Þorgeir Kristjánsson er meiddur á öxl og ekki annað vitað en hann taki ekki þátt í leiknum. 

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -