- Auglýsing -
Síðari viðureign dagsins í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla verður á milli Spánarmeistara og Evrópumeistara síðasta árs, Barcelona, og silfurliðs þýsku 1. deildarinnar, SC Magdeburg. Leikurinn hefst klukkan 16 að íslenskum tíma. Sigurliðið mætir annað hvort Füchse Berlin eða Nantes í úrslitaleik Meistaradeildar á morgun í Lanxess-Arena í Köln.
Barcelona og Magdeburg mættust í undanúrslitum Meistaradeildar fyrir tveimur árum. Magdeburg vann í sögulegum framlengdum leik, 41:39.
Barcelona – SC Magdeburg, kl. 16
- Barcelona vann B-riðil Meistararadeild og sat þar af leiðandi yfir í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Spænska stórliðið lenti í kröppum dansi gegn Pick Szeged í átta liða úrslitum en tókst að merja út nauman sigur, 56:54, samanlagt þrátt fyrir tap á heimavelli gegn ungversku bikarmeisturunum.

- Barcelona hefur 12 sinnum unnið Meistaradeild Evrópu og Evrópukeppni meistaraliða áður, þar af fjórum sinnum á síðustu 10 árum, 2015, 2021, 2022 og 2024.
- Franski markvörðurinn Vincent Gérard tók fram skóna síðla vetrar og samdi við Barcelona eftir að spænski landsliðsmarkvörðurinn Gonzalo Perez de Vargas sleit krossband.
- Gérard hefur síðan verið Dananum Emil Nielsen til halds og trausts. Gérard leggur síðan skóna á ný á hilluna í sumar og í staðinn bætist Viktor Gísli Hallgrímsson í hópinn.
- Sautján leikmenn Barcelona hafa unnið Meistaradeild Evrópu, þar af 16 með Barcelona. Reynslan er því mikil.

- Portúgalinn Luiz Frade og Frakkinn Melvyn Richardsson eru markahæstu leikmenn Barcelona í Meistaradeildinni á leiktíðinni með 64 mörk hvor.
- Richardson sem gengur til liðs við Wisla Plock í sumar var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitahelgar Meistaradeildar á síðasta ári þegar Barcelona lagði THW Kiel í undanúrslitum og Aalborg Håndbold í úrslitaleik.
- SC Magdeburg varð í fjórða sæti B-riðils og rétt slapp inn í útsláttarkeppninar með 13 stig af 28 mögulegtum.
- Magdeburg vann Dinamo Búkarest í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar, 65:55, samanlagt. Í átta liða úrslitum sló Magdeburg út ungverska meistaraliðið One Veszprém, 54:53, samanlagt.
- Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sigurmark Magdeburg í síðari leiknum í Veszprém þegar fáeinar sekúndur voru til leiksloka.

- Tímabilið hefur verið mjög erfitt hjá Bennet Wiegert þjálfara og liðsmönnum hans með fjölda leikmanna meidda. Ennþá er meiðslalistinn langur.
- Þrátt fyrir að hafa misst nokkra leiki úr vegna meiðsla er Ómar Ingi Magnússon markahæstur leikmanna Magdeburg í Meistaradeildinni með 64 mörk.

- Magdeburg vann Meistaradeild Evrópu 2002 undir stjórn Alfreðs Gíslasonar með Ólaf Stefánsson innanborðs. Næst vann Magdeburg keppnina 2023 með Wigert við stjórnvölin.
- Gísli Þorgeir Kristjánsson var þá valinn mikilvægasti leikmaður úrslitahelgarinnar 2023 eftir að hafa sýnt mikið hugrekki er hann lék úrslitaleikinn þrátt fyrir að hafa farið úr vinstri axlarlið í undanúrslitaleiknum við Barcelona.
- Bennet Wiegert þjálfari Magdeburg var í leikmannhópi Magdeburg þegar liðið vann Meistaradeildina 2002.
Einnig vann Magdeburg gömlu Evrópukeppni Meistaraliða í tvígang með þýska þjóðin var klofin í tvö lönd, 1978 og 1981.
- Auglýsing -