Magdeburg leikur til úrslita í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla á morgun eftir eins marks sigur í dramatískum leik við Evrópumeistara síðasta árs, Barcelona, 31:30, í Lanxess Arena í Köln síðdegis.

Tim Hornke skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins. Barcelona-liðið var þá tveimur mönnum færri eftir að leikmenn liðsins höfðu fengið rauða spjaldið með skömmu millibili þegar hálf önnur mínúta var til leiksloka. Barcelonamenn sáu þriðja rauða spjaldið þegar í fyrri hálfleik.
Úrslitaleikurinn á morgun verður þýskur því andstæðingur Magdeburg verður Füchse Berlin sem varð þýskur meistari í fyrsta sinn fyrir viku.

Eins og kom fram á handbolti.is þá var Gísli Þorgeir Kristjánsson í liði Magdeburg í dag eftir tveggja vikna fjarveru sökum höggs á vinstri öxlina í kappleik fyrir tveimur vikum. Skemmst er frá því að segja að Gísli Þorgeir lék svo að segja allar sóknir Magdeburg í dag.
Petrus fékk rautt í fyrri
Barcelona var lengst af sterkara liðið í fyrri hálfleik og voru með eins til fjögurra marka forskot. Spánarmeistararnir urðu fyrir fyrsta áfallinu á 27. mínútu þegar varnartröllinu Thiagus Petrus var sýnt rautt spjald fyrir að slá Gísla Þorgeir Kristjánsson í andlitið. Petrus hafið reynst Gísla Þorgeiri óþægur ljár í þúfu. Leikmenn Magdeburg nýttu sér fjarveru Petrus til að jafna metin fyrir hálfleik, 18:18.

Ómar kom Magdeburg yfir
Barcelona var áfram sterkara í síðari hálfleik. Magdeburg lenti þremur mörkum undir, 24:21, eftir að hafa jafnað, 21:21. Ómar Ingi Magnússon kom Magdeburg í fyrsta sinn yfir, 25:24, með marki úr vítakasti um miðjan síðari hálfleik. Ekki tókst Magdeburg að fylgja þessu eftir.

Dika Mem úr leik
Dika Mem meiddist á hné um miðjan síðari hálfleik og kom ekkert meira við sögu. Þótt Barcelona eigi marga góða leikmenn þá er bara einn Dika Mem.
Barcelona komst yfir á ný, 27:26, og aftur 29:27, þegar níu mínútur voru til leiksloka. Þá eftir að hafa skorað tvö mörk í röð í autt mark Magdeburg sem hafði kallað markvörð sinn af leikvelli.
Af harðfylgi jafnaði Magdeburg metin, 29:29. Eftir það voru síðustu mínúturnar sannkallaður naglbítur.

Tvö rauð með skömmu millibili
Þegar hálf önnur mínúta var til leiksloka liðu 15 sekúndur á milli tveggja rauðra spjalda sem leikmenn Barcelona fengu dæmd á sig. Dómararnir Slave Nikolov og Gjorgji Nachevski frá Norður Makedóníu fóru í bæði skiptin í skjáinn til að vera vissir í sinni sök. Fyrst fór Jonathan Carlsbogard og síðan Aitor Ariño Bengoechea. Fimm á móti sjö á lokakaflanum og án Petrusar og Mem í ofan á lag þá varð eitthvað að láta undan hjá Barcelona.
Vafalaust mun Barcelona skella skuldinni á dómarana enda voru tvö fyrstu spjöldin frekar ströng að mati þess sem þetta ritar en það þriðja var vegna svipað brots og Mathias Gidsel var vikið af leikvelli fyrir með rautt spjald í fyrri undanúrslitaleiknum. Aitor Ariño Bengoechea, leikmaður Barcelona, rann í veg fyrir Tim Hornke hornamann Magdeburg.
Mörk Barcelona: Dika Mem 8, Timothey N’guessan 5, Melvyn Richardson 5, Aitor Ariño Bengoechea 3, Domen Makuc 3, Jonathan Carlsbogard 2, Aleix Gómez Abelló 2, Luis Frade 2.
Varin skot: Emil Nielsen 12, 29,2% – Vincent Gérard 0.
Mörk Magdeburg: Ómar Ingi Magússon 11, Tim Hornke 7, Albin Lagergren 4, Felix Claar 3, Lukas Mertens 2, Magnus Saugstrup 2, Gísli Þorgeir Kristjánsson 1, Oscar Bergendhal 1.
Varin skot: Nikola Portner 8, 29,6% – Sergey Hernandez 1, 8,3%.
Handbolti.is var í Lanxess Arena í Köln og fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.