„Þetta var erfitt enda á það að vera erfitt að vinna leik í undanúrslitum Meistaradeildar,“ sagði Ómar Ingi Magnússon markahæsti leikmaður Magdeburg í samtali við handbolta.is í Lanxess Arena eftir að Magdeburg vann Barcelona, 31:30, í undanúrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í dramatískum spennuleik. Sigurmarkið var skoraði á síðustu sekúndu.
Magdeburg mætir Füchse Berlin í úrslitaleik á morgun.
Útlitið var ekki gott á tímabili
„Ég er bara ángæður með að við unnum því bæði var leikurinn sveiflukenndur og síðan var útlitið ekkert alltof gott á tímabili í leiknum,“ sagði Ómar Ingi sem var markakhæstur með 11 mörk, sjö þeirra úr vítaköstum. Hann kom Magdeburg í fyrsta sinn yfir í leiknum, 25:24, rétt fyrir miðjan síðari hálfleik.
„Við gáfumst aldrei upp. Það dreif okkur áfram. Við höfðum trú á sigrinum alla leið. Það fylgdi okkur í þessum leik eins og stundum áður á keppnistímabilinu,“ bætti Ómar Ingi við en hann tekur í fyrsta sinn þátt í úrslitaleik Meistaradeildar á morgun. Ómar Ingi var meiddur þegar Magdeburg vann Meistaradeildina vorið 2023.
„Það verður bara gaman að vera með,“ sagði Ómar Ingi Magnússon leikmaður Magdeburg í stuttu viðtali við handbolta.is í Lanxess Arena í kvöld.
Úrslitaleikur SC Magdeburg og Füchse Berlin hefst klukkan 16 á morgun að íslenskum tíma. Handbolti.is er í Lanxess Arena og fylgist með viðureigninni.
Áður en úrslitaleikurinn hefst eigast við Barcelona og HBC Nantes um bronsverðlaunin.