Handknattleiksdeild Víkings hefur framlengt samning við Stefán Scheving Guðmundsson, vinstri skyttu meistaraflokks karla, til loka tímabilsins 2026–2027. Stefán Scheving kom til Víkings fyrir tveimur árum frá Aftueldingu
„Það er mér mikil ánægja að framlengja við Víking. Ég finn að við erum að byggja upp sterka liðsheild með skýr markmið. Ég ætla að leggja mig allan fram fyrir liðið og hjálpa því að ná þeim árangri sem við stefnum á – bæði með frammistöðu minni og fjölhæfni innan liðsins,“ var haft eftir Stefáni við undirritun í tilkynningu Víkings.
Aðalsteinn Eyjólfsson, yfirmaður handknattleiksmála hjá Víkingi og jafnframt þjálfari meistaraflokks karla er ánægður með framlengingu Stefáns.
„Stefán er mikilvægur hlekkur í liðinu, hann er harður í horn að taka í maður á mann leik, fjölhæfur og alltaf tilbúinn að axla ábyrgð. Hann veitir okkur stöðugleika, sveigjanleika og baráttuanda – eiginleikar sem verða lykilatriði í því að ná markmiðum okkar næstu tvö tímabil,“ segir Aðalsteinn í sömu tilkynningu og áður er vitnað til.