- Auglýsing -

Daníel mætir á ný til leiks með KA

Daníel Matthíasson t.v. glaður í bragði með Andra Snæ Stefánssyni þjálfara KA. Ljósmynd/KA
- Auglýsing -


Handknattleiksliði KA í karlaflokki barst í dag góður liðsstyrkur fyrir komandi átök í vetur þegar Daníel Matthíasson skrifaði undir samning hjá félaginu. Daníel er þar með kominn heim á nýjan leik eftir nokkurra ára veru hjá FH hvar hann varð m.a. Íslandsmeistari vorið 2024.


Daníel er þrítugur varnarjaxl og öflugur línumaður. Hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með sameiginlegu liði Akureyrar handboltafélags árið 2012 en gekk í raðir FH árið 2014. Daníel sneri aftur heim í KA árið 2018 en fór fjórum árum síðar á ný til FH.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -