Harpa María Friðgeirsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Fram. Harpa María, sem verður 25 ára í ár, er uppalin hjá Fram og leikur í stöðu vinstri hornamanns. Hún hefur spilað með öllum yngri flokkum félagsins og hóf að spila með meistaraflokki haustið 2017, þá aðeins 17 ára gömul.
Harpa María gekk til liðs við danska félagið TMS Ringsted síðastliðið haust samhliða því sem hún stundaði mastersnám í Danmörku. Hún gekk til liðs við Fram á nýjan leik í byrjun ársins og lék tólf leiki með Fram á síðari hluta keppnistímabilsins.
Þess má til gamans geta að Harpa María hefur orðið Íslandsmeistari í alpagreinum skíðaíþrótta og um árabil keppt fyrir hönd skíðadeildar Fram. Systir Hörpu Maríu er Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir margfaldur Íslandsmeistari í alpagreinum skíðaíþrótta og Ólympíufari.