- Auglýsing -

Tekur fram skóna og ætlar að leika með KA

Ingvar Heiðmann Birgisson t.v. ásamt Andra Snæ Stefánssyni þjálfara KA. Ljósmynd/KA
- Auglýsing -


Handknattleiksdeild KA hefur borist góður liðsstyrkur en Ingvar Heiðmann Birgisson hefur gengið í raðir KA-liðsins á nýjan leik og leikur með liðinu í Olísdeildinni á komandi vetri. Ingvar sem er þrítugur að aldri er öflugur varnarmaður en er einnig línumaður, segir í tilkynningu KA í dag.


Ingvar hóf handboltaferil sinn með yngri flokkum KA en hann er frá Gullbrekku í Eyjafirði. Hann kom í kjölfarið inn í sameiginlegt lið Akureyrar en þaðan gekk hann í raðir ÍR er hann flutti suður tvítugur að aldri. Hann vakti verðskuldaða athygli með ÍR liðinu þar sem var einn af burðarásunum í sterkum varnarleik liðsins en hann missti vart úr leik með ÍR árin sem hann hélt til í Breiðholtinu.

Ingvar sem er hörku íþróttamaður tók sér svo pásu frá handboltanum og gerði það meðal annars gott í crossfit heiminum en hann var einnig öflugur í frjálsum íþróttum á sínum yngri árum, segir ennfremur í tilkynningu frá KA.


Karlar – helstu félagaskipti 2025

Konur – helstu félagaskipti 2025

Þjálfarar – helstu breytingar 2025

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -