- Auglýsing -

Blær er orðaður við þýskt félagslið

Blær Hinriksson er orðaður við Leipzig í Þýskalandi. Ljósmynd/Raggi Óla
- Auglýsing -


Blær Hinriksson leikmaður Aftureldingar er orðaður við þýska 1. deildarliðið SC DHfK Leipzig í frétt SportBild í dag. Framkvæmdastjóri SC DHfK Leipzig, Karsten Günther, staðfestir í samtali að þeim hafi verið boðnir starfskraftar Blæs.


Segir Günther að við leit að manni til að hlaupa í skarðið fyrir Simon Ernst hafi þeim verið boðið að skoða eða semja við Blæ. Ljóst sé að Ernst verði frá keppni í nokkra mánuði vegna meiðsla.

Blær hefur leikið með Aftureldingu í fjögur ár og verið í burðarhlutverki allan tímann. Eftir því sem handbolti.is kemst næst á Blær ár eftir af samning sínum við Aftureldingu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -