- Auglýsing -

Færeyingar unnu stórsigur – Ísland leikur um sæti 17 til 32.

Færeysku piltarnir fagna sigri á Rúmenum og þar með sæti í 16-liða úrslitum HM. Ljósmynd/IHF
- Auglýsing -


Íslenska landsliðið leikur um sæti 17 til 32 á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða í handknattleik sama hvernig leikurinn við Norður Makedóníu fer eftir hádegið í dag. Færeyingar unnu Rúmena örugglega, 35:28, í síðustu umferð F-riðils í morgun og vinna riðilinn með fimm stig og fara áfram í milliriðla 16-liða úrslita með tvö stig. Rúmenar hafna í öðru sæti með fjögur stig og fara áfram stigalausir.


Eina von íslenska liðsins um sæti í milliriðlum 16-liða úrslit var að Rúmenar ynnu Færeyinga og að íslenska liðið legði Norður Makedóníu með nokkrum mun. Nú má segja að eina sem sé undir fyrir íslenska liðið sé að taka með sér tvö stig í keppnina um sæti 17 til 32.

Færeyingar léku sér að Rúmenum í síðari hálfleik í dag. Eftir jafnan leik í 26 mínútur tók færeyska liðið öll völd á leikvellinum, ekki síst í upphafi síðari hálfleiks. Mestur varð munurinn níu mörk, 30:21. Rúmenum tókst að minnka muninn í fimm mörk. Nær komust þeir ekki.

Óli Mittún var markahæstur í færeyska liðinu með 9 mörk og 8 stoðsendingar. Niklas Gaard var næstur með átta mörk. Daniel Stanciuc var atkvæðamestur í rúmenska liðinu með sjö mörk.


Eins og á HM 19 ára landsliða fyrir tveimur árum þá koma slæm úrslit í fyrsta leik riðlakeppninnar íslenska landsliðinu í koll þegar upp er staðið.

Leikur Íslands og Norður Makedóníu hefst klukkan 12 og verður hægt að fylgjast með honum á handbolta.is, bæði í lifandi útsendingu og í textalýsingu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -