- Auglýsing -

Arnbjörg Berta framlengir samning sinn

Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir og Aðalsteinn Eyjólfsson yfirmaður handknattleiksmála hjá Víkingi. Ljósmynd/Víkingur
- Auglýsing -


Handknattleiksdeild Víkings hefur framlengt samning við Arnbjörgu Berthu Kristjánsdóttur, línumann meistaraflokks kvenna, til sumarsins 2027. Samningurinn styrkir áframhaldandi uppbyggingu liðsins sem stefnir á árangur í íslenskum kvennahandbolta, segir í tilkynningu frá Víkingi.

Arnbjörg hefur verið lykilleikmaður í vörn og sókn, þekkt fyrir kraft, staðfestu og óbilandi baráttuanda. Hún er mikilvægur þátttakandi í uppbyggingu liðsins og sýnir stöðuga framför með hverju tímabili.


„Ég er mjög ánægð með að framlengja við Víking. Það er mikill metnaður innan liðsins og ég trúi á verkefnið. Við erum á réttri leið og ég hlakka til að taka þátt í næstu skrefum með öflugum hópi leikmanna og þjálfara, sagði Arnbjörg við undirritun samningsins.“

„Arnbjörg er kraftmikill og ástríðufullur leikmaður sem leggur allt í verkefnið. Hún er fyrirmynd innan liðsins og sýnir bæði seiglu og fagmennsku sem eru lykilþættir í okkar metnaðarfullu uppbyggingu. Það er okkur mikill heiður að halda áfram samstarfi við hana,“ var haft eftir Aðalsteini Eyjólfssyni yfirmanni handknattleiksmála hjá Víkingi við undirritun.


Víkingur hafnaði í 5. sæti í Grill 66-deild kvenna á síðustu leiktíð og tapaði fyrir Stjörnunni í fyrstu umferð umspils Olísdeildar. Einnig komst Víkingur í átta liða úrslit Poweradebikarsins en tapaði naumlega fyrir Gróttu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -