- Auglýsing -

Elmar hefur komið nærri meira en helmingi marka íslenska liðsins

Elmar Erlingsson leikmaður 21 árs landsliðsins. Ljósmynd/IHF
- Auglýsing -


Elmar Erlingsson hefur komið að meira en helmingi marka íslenska landsliðsins í þremur fyrstu leikjum þess á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða sem stendur yfir í Póllandi þessa dagana. Eyjapeyinn hefur skorað 30 mörk í leikjunum þremur en einnig gefið 19 stoðsendingar. Hann hefur þar með átt þátt í 49 af 94 mörkum Íslands á mótinu.


Færeyingurinn Óli Mittún er sem fyrr bæði markahæstur á mótinu og sá sem gefið hefur flestar stoðsendingar, samanlagt 57 mörk og stoðsendingar af 103 mörku færeyska landsliðsins.

Markahæstir:
Óli Mittún, Færeyjum, 35
Daniel Stanciuc, Rúmeníu, 31.
Elmar Erlingsson, Íslandi, 30.
Luca Sigris, Sviss, 26.
Haruto Nagamori, Japan, 25.
Dimitar Unzunchev, N-Makedóníu, 23.
Magnus Pedersen, Danmörku, 22.
Henrik Hartz Hagen, Noregi, 22.
Naël Tighiouart, Frakklandi, 22.
Koussay Ben Fraj, Túnis, 21.
Razgui Abdellah, Marokkó, 21.
José Ferreira, Portúgal, 21.

Næstu Íslendingar:
Össur Haraldsson, 16.
Skarphéðinn Ívar Einarsson, 13.
Birkir Snær Steinsson, 8.

Flestar stoðsendingar:
Óli Mittún, Færeyjum, 22.
Haruki Kawada, Japan, 20.
Elmar Erlingsson, Íslandi, 19.
Luca Siris, Sviss, 16.
Daniel Stanciuc, Rúmeníu, 16.
Youness Mansari, Marokkó, 15.
Filipe Monteiro, Portúgal, 13.
Codrin Radu, Rúmeníu, 12.
Petar Cikusa, Spáni, 11.
Lun Kljucanin, Slóveníu, 11.
Mirche Kalajdjieski, N-Makedóníu, 11.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -