Alvarlegt atvik átti sér stað þegar lið Montpellier2 og Saintes áttust við á dögunum í úrslitaleik þriðju efstu deildar franska handknattleiksins. Hópur áhorfenda, sem voru sagðir hafa verið á bandi Saintes höguðu sér eins og kjánar. Sprengdu þeir m.a. púðurkellingar í keppnissalnum og köstuðu lauslegu inn á leikvöllin. Einhverjar af sprengjunum sprungu nærri dómurum leiksins með þeim afleiðingum að annar þeirra varð að leita til læknis. Leikurinn var flautaður af eftir 90 sekúndur vegna þess að fyrrgreindum hópi áhorfenda héldu engin bönd.
Samkvæmt franska miðlinum Handnews var leiknum hætt eftir að nokkrir áhorfendur köstuðu lausamunum inn á leikvöllinn og kveiktu í blysum á pöllunum og beindu þeim bæði að dómurum og leikmönnum. Lögreglan var fljótlega kölluð á staðinn til þess að tryggja að friðsamir áhorfendur gætu yfirgefið völlinn. Einhverjir óróaseggirnir voru handteknir.
„Svona atvik eiga ekki heima í handknattleik. Við fordæmum harðlega þessa hegðun og munum grípa til nauðsynlegra íþróttalegra og lagalegra aðgerða til að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki,“ segir í tilkynningu franska handknattleikssambandsins.
Sambandið hefur nú skipað að leikurinn fari fram á ný og á hlutlausum velli og án áhorfenda. Hinsvegar er komið babb í bátinn vegna þess að ef Saintes vinnur leikinn og kemst upp í næst efstu deild þá hafa stjórnendur deildarinnar neitað að veita liðinu þátttökurétt eftir það sem á undan er gengið. Ljóst er að ekki eru öll kurl komin til grafar í þessum efnum.