- Auglýsing -

Rúnar ráðinn í fullt starf hjá Íslandsmeisturunum

Rúnar Kárason verður áfram með Fram. Ljósmynd/Fram
- Auglýsing -


Handknattleiksmaðurinn Rúnar Kárason hefur verið ráðinn í fullt starf hjá Íslandsmeisturum Fram sem hann ætlar að sinna samhliða því að leika áfram með liði félagsins. Handknattleiksdeild Fram sagði frá því í dag að Rúnar hafi skrifað undir nýjan leikmanna samning um leið og hann var ráðinn rekstrarstjóri handknattleiksdeildar og yfirþjálfari yngri flokka.


„Það er virkilega ánægjulegt að fá Rúnar á fullu inn í starfið og við bindum miklar vonir við að geta nýtt okkur þekkingu hans og reynslu á enn fleiri vígstöðvum,” segir Þorgrímur Smári Ólafsson, framkvæmdastjóri Fram í tilkynningu félagsins.

Sjálfur er Rúnar spenntur fyrir verkefninu: „Ég er virkilega spenntur fyrir þessu hlutverki og vona að ég geti staðið undir væntingum og haldið áfram með það góða starf sem hér hefur verið unnið,” er haft eftir Rúnari í sömu tilkynningu.

Einn sá reyndasti

Rúnar er einn reyndasti handknattleiksmaður landsins. Hann lék upp yngri flokka Fram en fór liðlega tvítugur til Þýskalands og lék þar níu ár og síðan í þrjú ár til viðbótar í Danmörku. Eftir heimkomu 2021 var Rúnar í herbúðum ÍBV í tvö ár og varð Íslandsmeistari með Eyjamönnum 2023 og var um leið valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar. Til Fram kom Rúnar á nýjan leik fyrir tveimur árum. Hann átti stóran þátt í Íslands- og bikarmeistaratitli Fram á síðustu leiktíð, með vinnu sinni utan vallar sem innan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -