- Auglýsing -

Víkingur semur við Þorfinn Mána til tveggja ára

Þorfinnur Máni Björnsson t.v. ásamt Aðalsteini Eyjólfssyni yfirmanni handboltamála hjá Víkingi. Ljósmynd/Víkingur
- Auglýsing -


Vinstri hornamaðurinn Þorfinnur Máni Björnsson hefur framlengt samning sinn við Víking til næstu tveggja ára. Þorfinnur Máni hefur verið fastamaður í meistaraflokki undanfarin ár eftir að hann kom til félagsins frá Haukum. Hann hefur vaxið jafnt og þétt í lykilhlutverk innan liðsins. Þorfinnur Máni er þekktur fyrir öflugan og útsjónarsaman varnarleik, sem og fyrir hraðaupphlaup sín þar sem hann nýtir styrk sinn og hraða til fulls, segir í tilkynningu Víkings sem eru lýsir yfir stolti með framlengingu samningsins.

Er mikilvægur hluti

„Við erum mjög ánægð með að framlengja við Þorfinn Mána, sem hefur spilað stórt hlutverk hjá okkur síðan hann kom til okkar frá Haukum,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari og yfirmaður handknattleiksmála hjá Víkingi. „Hann hefur sýnt mikinn stöðugleika í leik sínum, er sterkur varnarlega og fljótur að refsa með hraðaupphlaupum. Þorfinnur er mikilvægur hluti af okkar leikstíl og menningu innan félagsins.“

Þorfinnur Máni hefur sýnt Víkingstreyjunni tryggð og hlakkar til að halda áfram að leggja sitt af mörkum í velgengni liðsins. „Það er mér sannur heiður að klæðast treyju Víkings áfram,“ segir Þorfinnur Máni. „Ég finn að ég er á réttum stað með rétta fólkinu og stefnum við saman að háleitum markmiðum.“

Skýrt markmið

„Markmið handknattleiksdeildar Víkings fyrir komandi tímabil er skýrt: sigur í Grill 66 deildinni og að komast sem lengst í bikarkeppni karla. Með áframhaldandi krafti Þorfinns Mána og annarra lykilleikmanna er ljóst að liðið er vel í stakk búið til að láta til sín taka á báðum vígstöðvum,“ segir í ennfremur í tilkynningu frá Víkingi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -