Hvorki Þorsteinn Leó Gunnarsson né Óðinn Þór Ríkharðsson munu láta ljós sitt skína í leikjum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla á næsta keppnistímabili. Liðum þeirra, FC Porto og Kadetten Schaffhausen, var synjað um þátttökurétt í deildinni. Verða þau þar með að láta slag standa í Evrópudeildinni.
Nítján lið óskuðu eftir sæti í Meistaradeild karla á næsta keppnistímabili. Eins og undanfarin ár taka 16 lið þátt og verða þau dregin í tvo riðla á föstudaginn.
Auk FC Porto og Kadetten Schaffhausen var umsókn slóvensku meistaranna RD LL Grosist Slovan synjað.
Eftirtalin félög fá inngöngu fyrir utan landskvóta:
Danmörk – GOG.
Frakkland – HBC Nantes.
Ungverjaland – OTP Bank – PICK Szeged.
N-Makedónía – HC Eurofarm Pelister.
Noregur – Kolstad Håndbold.
Pólland – Industria Kielce.
Eftirtalin lönd og lið áttu víst sæti í krafti landskvóta:
Króatía – HC Zagreb.
Danmörk – Aalborg Håndbold.
Spánn – Barcelona.
Frakkland – Paris Saint-Germain Handball.
Þýskaland – Füchse Berlin.
Þýskaland – SC Magdeburg.
Ungveraland – One Veszprém HC.
Pólland – Orlen Wisla Plock.
Portúgal – Sporting CP.
Rúmenía – Dinamo Bucuresti.
Fimmtán af liðunum sextán sem taka þátt í Meistaradeild Evrópu í karlaflokki á næsta keppnistímabili voru með á síðustu leiktíð. Eina nýja liðið er GOG sem tekur sæti Fredericia HK.