Færeyska landsliðið er komið í undanúrslit á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla, skipað leikmönnum 21 árs og yngri. Færeyingar unnu Slóvena í átta liða úrslitum í Sosnowiec í Póllandi, 35:33, í kvöld. Þetta er í fyrsta skipti sem færeyskt landslið kemst í undanúrslit á stórmóti í boltaíþrótt.
Fyrir tveimur árum náði færeyska landsliðið í átta liða úrslit á HM U21 árs í Berlín en tapaði þá fyrir Serbíu.
Færeyingar mæta Portúgölum í undanúrslitaleik annað kvöld kl. 19. Í hinni viðureign undanúrslita eigast við Danmörk og Svíþjóð.
Færeyingar yfirspiluðu Slóvena í fyrri hálfleik og voru með sex marka forskot að honum loknum, 19:13. Slóvenska liðið náði áhlaupi framan af síðari hálfleik og minnkaði muninn í tvö mörk, 23:21, eftir 10 mínútur. Færeyska liðið beit frá sér á nýjan leik og náði fimm marka forskoti, 29:24 og 33:28 þegar liðlega fimm mínútur voru til leiksloka.
Myndir: Stóri føroyski fagnaðurin eftir søguliga sigurin
Mikil spenna í lokin
Mikil spenna var á lokamínútunni þegar Slóvenar nálguðust hægt og bítandi. Færeyska liðið missti boltann þegar 45 sekúndur voru eftir. Slóvenar minnkuðu muninn í eitt mark, 34:33. Rókur Ziskason skoraði 45. mark Færeyinga þegar 25 sekúndur voru til leiksloka og þar við sat. Færeyingar fögnuðu skiljanlega vel og lengi á eftir.
Línumaðurinn öflugi, Isak Vedelsbøl var markahæstur í færeyska liðinu með 10 mörk. Óli Mittún var næstur með sex mörk. Høgni Heinason átti stórleik með fjögur mörk og átta stoðsendingar og tók aðeins við Óla sem var vandlega gætt af slóvensku varnarmönnunum. Aleksandar Lacok varði 14 skot í markinu, 33%.
Aljus Anzic skoraði 14 mörk fyrir Slóvena sem verða að gera sér að góðu að leika um sæti fimm til átta.
Føroyar skulu spæla HM-hálvfinalu
45 manna þorp á þrjá landsliðsmenn