Íslenska landsliðið tapaði fyrir Serbum, 38:35, í viðureigninni um 17. sæti og forsetabikarinn á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða karla í Póllandi í dag. Staðan var jöfn, 18:18, að loknum fyrri hálfleik.
Íslenska landsliðið hafnaði í 18. sæti af 32 liðum á mótinu.
Íslenska liðið var undir lengi vel í fyrri hálfleik. Varnarleikurinn var erfiður. Sama stemning og gegn Pólverjum í gær náðist ekki upp. Serbar voru með tveggja til þriggja marka forskot lengst af. Þegar leið nærri lokum hálfleiksins tókst íslensku piltunum að snúa taflinu við. Breki Hrafn Árnason kom í markið og varði nokkru skot. Ísland komst yfir, 16:15, þegar skammt var til loka hálfleiksins og hefði getað farið með yfirhöndina inn í hálfleikshléið.





Fyrsti stundarfjórðungur síðari hálfleiks reyndist íslensku piltunum erfiður. Kosta Dizdar marvörður Serba, sem mætti þá til leiks skellti í lás og varði allt hvað af tók. Áður en hálfleikurinn var hálfnaður var forskot Serba komið í sex mörk, 20:26, og síðan 23:28. Þá var eins og kveiknaði á vörn íslenska liðsins. Serbar gerðu sig seka um að gera hvert axarskaftið á eftir öðru. Átta mínútum fyrir leikslok var munurinn kominn niður í eitt mark, 29:30, fyrir Serba og spenna hlaupin í leikinn.
Spennan entist ekki lengi því eftir leikhlé gerðu Serbar út um leikinn á ný. Dizdar lokaði markinu á ný og félagar hans í sókninni fylgdu vel á eftir. Annað tap Íslands í sjö leikjum á HM var staðreynd og um leið 18. sætið sem er sannarlega undir vonum.
Mörk Íslands: Sigurður Snær Sigurjónsson 7/1, Elmar Erlingsson 6/1, Skarphéðinn Ívar Einarson 5, Haukur Ingi Hauksson 4, Sigurður Páll Matthíasson 4, Eiður Rafn Valsson 2, Össur Haraldsson 2, Andri Fannar Elísson 1, Birkir Snær Steinsson 1, Hans Jörgen Ólafsson 1, Hinrik Hugi Heiðarsson 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1.
Varin skot: Breki Hrafn Árnason 11, 28% – Ísak Steinsson 0.
Mörk Serbíu: Vukašin Antonijević 10, Simo Šijan 10, Vojin Čabrilo 6, Filip Milovanović 3, Mladenko Draško 3, Radan Kovacević 2, Luka Sevic 2, Djordje Rančić 1, Milija Papović 1.
Varin skot: Kosta Dizdar 13, 43% – Nikola Zoric 8, 32%.
HMU21-’25: Dagskrá og úrslit síðustu leikja mótsins
Handbolti.is fylgdist með viðureigninni í textalýsingu hér fyrir neðan.