Dregið var í riðla Meistaradeildar karla í handknattleik í gær. Nöfn sextán liða frá ellefu þjóðum voru í skálunum sem dregið var úr. Nýkrýndir Evrópumeistarar SC Magdeburg fengu sæti í B-riðli meðal annars með Barcelona en liðin mættust í undanúrslitaleik Meistaradeildar fyrir tveimur vikum. Viktor Gísli Hallgrímsson verður mættur til leiks í markið hjá Barcelona þegar liðið mætir Gísla Þorgeiri Kristjánssyni, Elvari Erni Jónssyni og Ómari Inga Magnússyni og liðsfélögum í SC Magdeburg á næsta keppnistímabili.
Alls munu 11 Íslendingar leika með liðum Meistaradeildar á næstu leiktíð.
Fyrstu leikir keppninnar fara fram 10. og 11. september.
A-riðill:
Aalborg Håndbold – Danmörk.
Füchse Berlin – Þýskaland.
One Veszprém HC – Ungverjaland.
Industria Kielce – Pólland.
HBC Nantes – Frakkland.
Sporting CP – Portúgal.
Dinamo Bucuresti – Rúmenía.
Kolstad Håndball – Noregur.
B-riðill:
Orlen Wisla Plock – Pólland.
Barcelona – Spánn.
Paris Saint-Germain – Frakkland.
GOG – Danmörk.
SC Magdeburg – Þýskaland.
OTP Bank PICK Szeged – Ungverjaland.
HC Zagreb – Króatía.
HC Eurofarm Pelister – N-Makedónía.
Íslenskir handknattleikmenn með liðum Meistaradeildar Evrópu á næsta keppnistímabili:
One Veszprém HC: Bjarki Már Elísson.
Sporting CP: Orri Freyr Þorkelsson.
Kolstad: Arnór Snær Óskarsson, Benedikt Gunnar Óskarsson, Sigvaldi Björn Guðjónsson, Sigurjón Guðmundsson.
Barcelona: Viktor Gísli Hallgrímsson.
SC Magdeburg: Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon.
Pick Szeged: Janus Daði Smárason.
Þrjú lið frá úrslitahelginni drógust saman í riðil