- Auglýsing -
Handknattleikskonan Rósa Kristín Kemp hefur ákveðið að ganga til liðs við Fjölni sem leikur í Grill 66-deildinni. Rósa Kristín kemur til félagsins frá Haukum. Hún fylgir þar með í kjölfar Berglindar Benediktsdóttur sem kvaddi Hafnarfjarðarliðið á dögunum og skrifaði undir samning við Fjölni.
Rósa Kristín lék samtals 28 leiki með Haukum í Olísdeildinni og Haukum 2 í Grill 66-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði 54 mörk.
Hún verður fjórði nýi leikmaðurinn í herbúðum kvennaliðs Fjölnis á næstu leiktíð. Auk Rósu Kristínar og Berglindar sem áður er getið hafa Stefanía Ósk Engilbertsdóttir og Signý Pála Pálsdóttir bæst í leikmannahópinn.
Grill 66-deild kvenna – fréttasíða.
Konur – helstu félagaskipti 2025
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -