Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við vinstri skyttuna Hildi Guðjónsdóttur til tveggja ára. Hún kemur til félagsins frá FH. Hildur hefur verið ein burðarása FH-liðsins undanfarin ár og var m.a. valin handknattleikskona félagsins í árslok 2023. Á síðasta keppnistímabili var Hildur markahæsti leikmaður FH með 94 mörk í 18 leikjum í Grill 66-deildinni.
„Ég er mjög spennt fyrir nýjum kaflaskilum í mínum ferli og hlakka til að verða hluti af þessu metnaðarfulla verkefni hjá Víkingi. Mér líst mjög vel á umgjörðina og þá sýn sem félagið hefur. Ég ætla að leggja mig alla fram og vonast til að hjálpa liðinu að ná langt,“ segir Hildur í tilkynningu Víkings.
„Styrkur Hildar liggur fyrst og fremst í öflugu skoti utan af 9 metrunum og góðu auga fyrir leiknum. Hún bætir liðið strax og eykur breiddina verulega – sem er lykilatriði þegar kemur að því að takast á við langa og krefjandi leiktíð. Við erum gríðarlega ánægð með að fá hana í hópinn,“ er haft eftir Sebastian Alexanderssyni þjálfara Víkings í tilkynningu.
Konur – helstu félagaskipti 2025
Grill 66-deild kvenna – fréttasíða.